Jæja hvað haldiði, konan er
bara í Køben að spóka sig um og hafa það fínt. Annars er ég að
spá í að skipta þessu á daga svo að þetta fari nú ekkert í neitt
bull.
Veit nú ekki hvort maður á að
vera að segja frá þessu því að þetta er nú ekki beint það ábyrgasta
sem maður gerir. Ég fór í vinnuna á föstudeginum og þar sem það var
búið að plana staffadjamm í kjölfar starfsmannafundar sem byrjaði
kl. 18 þá var maður nú ekker að fara neitt mikið heim á milli í
þennan klukkutíma sem það gafst til að gera eitthvað. Eftir fundinn
fór maður heim og drattaðist í sturtu og make-over. Skundaðist svo
til Haffa til að taka hann með í partýið. Ég var nú ekkert
sérstaklega í fíling en ég skemmti mér vel og ákvað að fara heim kl
hálf 1 til að pakka mér saman. Var allavega ekki í fíling fyrir því
að ég væri að fara eitthvað til útlanda á þessum tímapunkti. Svona
í leiðinni þá ákvað ég að skutla Haffa til Ingu sem var
einhversstaðar að súpa á einhverjum kokteilum. Eitthvað fór þetta
fyrir ofan garð og neðan sem endaði þannig að ég skutlaði honum
heim og fór sjálf að hitta Ingu. Eins og ég sagði þá var ég ekkert
í neinum fíling fyrir því að vera fara í flug kl 7:30 um morguninn.
Hitti Ingu á Rossopromodoro og fórum þaðan á Sólon og dilluðum
okkur í takt við dansmúsíkina til kl. hálf 3. Þá var ég nú komin
með nettar áhyggjur af þessu ábyrgðarleysi og ákvað að fara heim og
í það minnsta pakka einhverju í tösku.
Gerði þau stóru mistök að
ákveða að leggja mig til svona 5 leytið svo að ég yrðii nú ekki
ósofin í þokkabót. Stillti vekjaraklukkuna og allt en nei...
gleymdi víst að kveikja á henni þannig að fyrir guðs náð hreinlega
vaknaði ég kl 6. Rauk út í bíl með töskur, Visakortið og vegabréf
og brunaði á nánast öðru hundraðinu út á
völl.
Klukkan orðin hálf 7 þegar ég
kem út á völl og þá á ég eftir að tékka mig inn, skila bílnum í
geymslu og fá mér að borða. Stressið kom eins og því væri helt úr
fötu yfir mig þegar ég sá röðina!! En mudi svo að Iceland Express
er með sér tékk inn og engin röð þar. Manni létti nú ekkert lítið
við það.
Dagur
1.
Út á flugvelli hitti ég 3
manneskjur sem mig grunaði nú síst að sjá þanna. Jóa frænda
og Guðrúnu konu bróður hans pabba og svo blaðakonu sem ég
vinn með. Merkilegt. Skoðaði fríhöfnina með öðru auganu og
fór svo skömmu seinna í vélina. Gafst ekki tími til neins annars.
Náði að blunda blunda í flugvélinni á leiðinni út og sá rúmið
mitt nánast í hyllingum. Þegar ég lenti mundi ég akkurat að
ég hafði gleymt að tékka á því hvað hótelið hét sem ég var að
gista á og prenta út voucher-inn fyrir herberginu. Fékk nett
panik en ég gekk að næsta deski og fékk að komast á netið til
að redda þessu öllu saman, á dönsku meira að segja. Snilld að
geta bara lært þetta í skóla og geta svo bara allt í einu
haft samskipti við þetta fólk í öðru landi,
magnað!!
Tók lestina á
Høvedbånegård sem ég ætlaði nú ekki að finna á
kortinu sem ég var að skoða til að vita nú allavega hvar ég
ætti að fara út. Nei þá heitir þetta víst København H hjá
þeim. Hótelið var svo bara statt eiginlega beint á móti
járnbrautarstöðinni þannig að ég náði nú ekki mikið að
villast í Køben. Nú í stað þess að fara að sofa áivað ég nú
að reyna að fá mér eitthvað að borða. Ekki mikið borðað áður
né á meðan fluginu stóð. Komst svo að því að það var bara
afgreiddur morgunmatur á hótelinu þannig að mín tók sér bara
göngutúr niður á Strikið og þá var nú ekki aftur snúið. Mikið
af mjög fallegum búðum og enn girnilegri tilboðum þannig að
það fór ekki mikið fyrir þessum svefni sem ég skyndilega var
búin að gleyma.
Klukkan 6 lokaði nú allt þannig að ég keypti mér
nokkra ávexti og reyndi svo að taka “lest” til baka. Ekki var
ætlaði ég að geta það en ég fékk bara mann sem vann við þetta
að passa upp á svona túrista eins og mig til að panta miða og
leiðbeiningar. Iss... minnið ekki upp á sitt besta og átti í
stökustu vandræðum að bera fram þetta Høvebånegård, kallaði
þetta Hovedblablabla þegar ég var var að spyrast fyrir í
tíunda skiptið hvernig ég ætti að komast þangað. Fór of langt
þurfti að fara til baka og ég veit ekki hvað og hvað.
Danirnir leiðréttu mig reyndar alltaf og ég held að ég gæti
nú borið þetta fram í svefni. Komst loksins á hótelið og fór
upp á herbergi til að leggja mig og allt. Nei... ekki gerðist
það því sjónvarpið varð allt í einu allveg svakalega
spennandi, fékk allt í einu mikla löngun til að horfa á MIB í
7. skiptið. Uss.. fór ekki mikið fyrir svefni og baugarnir
komnir niður á hæla. Fer út að borða um kvöldið og ákvað med
dette samme að það yrði borðað og svo farið heim að sofa!!
Stoppaði við á bar til að fá einn bolla af kaffi því kaffið á
veitingastaðnum var eitthvað það ógeðslegasta sem ég hef
smakkað ever! Lendi í þessari svakalegu kjaftatörn við
einhvern danan þarna inni, sem er allt í lagi þangað til að
vinir hans sem voru á 10. glasi komu og ákváðu að skemmta sér
yfir íslenskunni minni og spyrja mann sjörunum úr... gekk
ekki vel því að ég fór ekki úr einni spjör en fékk
harðsperrur í tunguna við að blanda saman ensku, dönsku og
íslensku. Fór ekki heim kl. hálf 2 og átti bágt með að halda
sönsum þarna inni. Skellti mér í sturtu, henti mér upp í rúm
og reyndi með herkjum að sofna, gekk ágætlega þangað til að
einhverjir hótelgestir fara halda gangapartý með reglulegu
millibili. Auðvitað vaknaði maður við það og kl. hálf 9 hættu
öll læti og ég gat sofið til hálf 10.
Nenni ekki að skirfa meira standandi í lobbýinu, meira
síðar.